Á þessari heimasíðu ætla ég að fjalla um Rómantísku stefnuna, sem var ákveðin stefna í bókmenntum sem kom fram upp frá Upplýsingaöldinni. Það varð mikil breyting á þessum tíma frá bæði Upplýsingaöldinni og Lærdómsöldinni, sem var undanfari Upplýsingarinnar. Tímabilin blandast svolítið saman þegar breytingin á sér stað, þar sem bókmenntir færast meira frá því að snúast upphaflega mikið um trú og trúarrit á tíma Lærdómsaldar, til meiri visku og lærdómsrita á Upplýsingatímanum, og svo yfir í Rómantísku stefnuna sem snerist mikið um hughyggju, fegurð, ýmiss konar myndmál og mikla einstaklings- og þjóðernishyggju. Mikið var þá samið af rómantískum ljóðum sem voru bæði um ást á fólki og á landi sínu og umhverfi. Einnig kemur fram í þessari stefnu heimshryggð, sem er tregafull tilfinning, vandlæting og efahyggja. Helsta listformið á þessum tíma var ljóðið, þótt önnur listform væru líka við lýði.