Upphaf rómantísku stefnunnar
Upphaf rómantísku stefnunnar á Norðurlöndum var í kringum 1800, og er oft talað um fyrirlestra heimspekingsins og náttúrufræðingsins Henrichs Steffens (1773-1845) sem tengingu við hana, en hann kynnti stefnuna í gegnum þá. Fyrirlestrar hans voru um þýska náttúruheimspekinginn Freidrich Schelling (1775 - 1854) sem var einn aðal boðberi stefnunnar í Þýskalandi.
Bjarni Thorarensen hefur sennilega hlustað á einhverja af fyrirlestrum Henrichs, og er talinn vera upphafsmaður rómantíkunnar á Íslandi. Fyrsta kvæðið sem samið var og flokkast sem rómantík heitir Ísland og er eftir Bjarna. En það var birt árið 1818 í Klausturpóstinum.